Skilmálar

Upplýsingar um söluaðila

Söluaðili er Regnboginn verslun ehf., Kt. 481018-1370. VSK: 132744.
Mörkinni 3, 108 Reykjavík.
Sími: 866-4493/8669788

Regnboginn verslun ehf. áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

Ósóttar pantanir
Hafi vara ekki verið sótt innan 3 mánaða eftir að hún er tilbúin til afhendingar fer hún aftur í sölu. Regnboginn verslun ehf. áskilur sér rétt á að endurgreiða ekki ósóttar pantanir.

Forpantanir
Þegar um forpöntun er að ræða er skal lesa vel yfir upplýsingar sem gefnar eru hverju sinni. Forpöntun merkir að varan er ekki til á lager en þú hefur möguleika á því að senda inn pöntun og tryggja þér eintak af vörunni. Athugið að ekki er hægt að hætta við forpantanir né fá þær endurgreiddar þar sem þær eru sérpantaðar fyrir viðskiptavininn, hægt er að skipta vörunni í aðra vöru sé þess óskað sérstaklega. Vegna covid eru uppgefnar dagsetningar á forpöntunum án ábyrgðar og geta tafir átt sér stað án fyrirvara.
Regnboginn verslun ehf. ber ekki ábyrgð á ófyrirsjáanlegum töfum á forpöntunum. Við munum upplýsa þig þegar pöntunin þín er tilbúin til afhendingar. Greitt er fullt verð fyrir vöruna við forpöntun, líkt og af venjulegum pöntunum.



Afhending vöru

Allar pantanir eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Af öllum pöntunum dreift af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Regnboginn verslun ehf. ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Regnboginn verslun ehf. til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda. 

Verð á vöru og sendingakostnaður

Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk en sendingakostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram. Við sendum allar vörur með Íslandspósti og hægt er að velja um að fá sent á pósthús eða í heimkeyrslu. Verðið er frá 890 kr fyrir sendingu á pósthús og frá 1.390 kr fyrir sendingu í heimkeyrslu.

Að skipta og skila vöru

Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru verður gefin út inneignarnóta eftir að varan er móttekin. Inneigninarnótan er í formi kóða sem er notaður hér á síðunni þegar verslað er og gildir í eitt ár frá útgáfudegi. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.

Gölluð vara

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir. Eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.

Trúnaður (Öryggisskilmálar)

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

Privacy policy

All personal information will be strictly confidential and will not be given or sold to a third party.

Lög og varnarþing

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavikur. (Governing law / Jurisdiction These Terms and Conditions are in accordance with Icelandic law.