Burðarrúmið frá Olliella er fullkomin viðbót við dúkkuleikinn, hægt að búa notalega um dúkkurnar í þessu fallega burðarrúmi. Það er hannað til að passa fyrir dozy dinkum dúkkurnar en þó passa líka cozy dinkum og venjulegu stærri Dinkum dúkkurnar passa líka þó það sé aðeins þrengra um þær þá gengur það vel. Burðarrúmið passar þar af leiðandi flestum dúkkum sem eru þó ekki stærri en 35 cm.
Burðarrúmið er úr hágæða bómull og er endingargott og vandað. Það kemur í fallegum taupoka svo það er tilvalin gjöf. Það er hægt að þvo burðarrúmið í taupokanum sem fylgir þá fer það í þvottavélina á kalt prógramm fyrir viðkvæman þvott.
Dropp: verð frá 790 kr
Pósturinn : verð frá 1090 kr