Viðbótarsett með vippu, 45 hlutir, gerir hönnun kúlubrauta enn skemmtilegri og krefst skapandi hugsunar við uppbyggingu brautarinnar. Hún hentar sérstaklega vel fyrir stærri kúlubrautir þar sem mikilvægt er að skipuleggja staðsetningu vippunnar til að ná sem bestum árangri. (sjá video neðar)
Kúlan rúllar upp vippuna þar til þyngd hennar breytir jafnvægi vippunnar. Þá hallast vippan og kúlan rúllar áfram með auknum hraða og miklum skriðþunga niður hina hliðina.
Kúlubrautir Hubelino eru hannaðar til að haldast stöðugar, þannig að börnin geta einbeitt sér að leiknum og skemmtuninni. Kúlubrautirnar stuðla að þróun rýmisgreindar og hjálpa börnum að skilja grundvallarlögmál eðlisfræðinnar, svo sem hreyfingu og þyngdarafl.
Allir 45 hlutirnir í vippuviðbótinni eru samhæfðir algengum kubbakerfum frá öðrum framleiðendum, t.d Duplo og má því auðveldlega sameina við núverandi kubba. Eins og allar vörur frá Hubelino er vippuviðbótin framleidd í Þýskalandi samkvæmt ströngustu gæðakröfum.
Inniheldur: 45 hluti
Hentar sem viðbót við Hubelino kúlubrautakerfið
Framleiðsluland: Þýskaland.
Dropp: verð frá 790 kr
Pósturinn : verð frá 1090 kr