Ný og spennandi vara frá Grapat!
Nú sérðu það....nú sérðu það ekki...en hey það er enn til staðar!
Töfrakassi sem börnin munu hafa gaman af, hægt að setja hluti í gegnum lokið til að safna, geyma eða sækja og setja aftur í gegn! Þroskandi leikfang sem getur hentað börnum frá 5-6 mánaða aldri. Kassinn er gerður með innblæstri frá montessori stefnunni og er talinn geta hjálpað börnum að mynda þekkingu á varanleika hlutar og gegnir það mikilvægu hlutverki í vitsmunaþroska og þróun félagslegrar færni. Þetta leikfang hvetur til endurtekningar, sem er mikilvægur þáttur í þróun einbeitingar barns. Einnig þróar leikfangið fínhreyfingar barns.
Kassinn er frábær viðbót við táknrænan leik og hefur endalausa leikmöguleika fyrir börnin til að uppgötva.
Stærð: 162x125x84mm
Öruggt fyrir 0 mánaða +
Dropp: verð frá 590 kr
Sending.is: verð frá 690 kr
Pósturinn : verð frá 1090 kr