Grapat mandala - Blandað sett natural
Grapat mandala - Blandað sett natural
Grapat mandala - Blandað sett natural
Grapat mandala - Blandað sett natural
Grapat mandala - Blandað sett natural
Grapat mandala - Blandað sett natural
Grapat mandala - Blandað sett natural
Grapat mandala - Blandað sett natural

Grapat mandala - Blandað sett natural

Regular price6.490 kr
/
verð með vsk
  • 4 stykki til á lager!
  • Inventory on the way

Í þessu setti eru 120 ólitaðir mandölubitar í 10 mismunandi gerðum. Þetta er frábært lausamunasett og inniheldur þessi mandöluform: Keilur, dropa, blóm, steina, hunangskökur, sveppi, egg, ananas, tré og snjókorn.

Frábært sett úr opnum efnivið svo börnin geta látið ímyndunaraflið blómstra. Hægt að nota til að telja, flokka, leggja saman og draga frá ásamt því að nota þá með öðrum leikföngum úr opnum efnivið, möguleikarnir eru endalausir. Svo er hægt að nota þessi sett til að fá útrás fyrir sköpunarkraft sinn og búa til mandölur á gólfi, borði eða á viðarbakka. Að búa til mandölur getur haft einstaklega róandi áhrif á mann og hentar fyrir börn sem fullorðna. Hægt er að blanda mandölusettum, raða saman og búa til falleg listaverk.

Grapat leikföng eru hönnuð til að kveikja á náttúrulegri löngun barna til að leika sér.  Þetta eru einföld leikföng úr opnum efnivið til að börnin upplifi frelsi í leik. Grapat leikföng eru afar vönduð, handgerð úr við frá sjálfbærum skógum og handmáluð með eiturefnalausri vatnsmálningu. 

Hentar fyrir 3 ára +

Mandölubitarnir eru 25-40 mm á hæð.


 

Dropp: verð frá 790 kr

Pósturinn : verð frá 1090 kr

Þér gæti einnig líkað við


Nýlega skoðað