Fullkomið byrjendasett fyrir unga sem aldna sem eru að kynnast Hubelino kúlubrautunum.
Mini Byggingarkassinn með 45 hlutum inniheldur allt sem þarf til að byggja litla en skemmtilega kúlubraut. Í settinu er grunnplata, kubbar, brautarhlutar, kúlur og leiðbeiningabæklingur sem auðveldar fyrstu skrefin í heimi Hubelino.
Passa við Duplo kubba.
Með hjálp leiðbeiningabæklingsins læra börn hvernig kúlubrautakerfið virkar og fá innsýn í mismunandi leiðir til að byggja brautir. Þegar grunnatriðin eru komin á hreint tekur sköpunargáfan við og opnar fyrir ótal möguleika til nýrra útfærslna og spennandi tilrauna.
Eins og öll byggingarsett frá Hubelino kemur settið í vönduðum geymslu- og burðarkassa, sem auðveldar að halda utan um hlutina og taka leikinn með sér hvert sem er.
Öryggi og gæði í fyrirrúmi
Hubelino vörur eru framleiddar í Þýskalandi samkvæmt ströngum gæðastöðlum. Þær eru CE-merktar, uppfylla EN 71 öryggisstaðalinn fyrir leikföng og hafa verið öryggisprófaðar af TÜV Germany.
ALDUR: 4 ára +
Dropp: verð frá 790 kr
Pósturinn : verð frá 1090 kr