Grapat mandala - appelsínugular keilur
Grapat mandala - appelsínugular keilur
Grapat mandala - appelsínugular keilur
Grapat mandala - appelsínugular keilur
Grapat mandala - appelsínugular keilur

Grapat mandala - appelsínugular keilur

Regular price3.490 kr
/
verð með vsk
  • Til á lager
  • Inventory on the way

Í þessu setti eru 36 viðarhlutir sem eru í laginu eins og keilur og eru málaðir létt í þremur appelsínugulum tónum. Þetta sett er frábær viðbót í hvers kyns leik þar sem ímyndunaraflið fær að ráða för. Hægt að nota til að telja, flokka, leggja saman og draga frá ásamt því að nota þá með öðrum leikföngum úr opnum efnivið, möguleikarnir eru endalausir. Svo er hægt að nota þessi sett til að fá útrás fyrir sköpunarkraft sinn og búa til mandölur á gólfi, borði eða t.d. á viðarbakka. Að búa til mandölur getur haft einstaklega róandi áhrif á mann og hentar fyrir börn sem fullorðna. Hægt er að blanda mandölusettum saman og búa til falleg listaverk.

Grapat leikföng eru hönnuð til að kveikja á náttúrulegri löngun barna til að leika sér.  Þetta eru einföld leikföng úr opnum efnivið til að börnin upplifi frelsi í leik. Grapat leikföng eru afar vönduð, handgerð úr við frá sjálfbærum skógum og handmáluð með eiturefnalausri vatnsmálningu. 

Keilurnar eru 4 cm á hæð og henta ekki fyrir börn undir 3 ára.

Dropp: verð frá 790 kr

Pósturinn : verð frá 1090 kr


Nýlega skoðað