Fer kúlan hratt eða hægt? Rennibrautin hægir á ferð kúlunnar niður brautina, en sérstök lögun hennar veldur því að kúlan snýst mun hraðar um eigin ás á sama tíma.
Þessi áhrif sjást sérstaklega vel þegar notaðar eru tvílitaðar kúlur, þar sem auðvelt er að fylgjast með snúningnum á meðan kúlan rúllar eftir brautinni.
Rennibrautin er þriggja kubba há og er hægt að staðsetja hana hvar sem er í kúlubrautinni. Best er að setja hana á stað þar sem auðvelt er að fylgjast með kúlunni snúast hratt um eigin ás þegar hún fer niður brautina.
Skemmtilegur aukapakki frá Hubelino. Þessi pakki inniheldur 4 rennibrautir og 8 kúlur. Fullkomin viðbót sem passa einnig með duplo kubbum!
Hubelino kubbarnir ganga 100% með Duplo kubbum.
Öryggi og gæði í fyrirrúmi
Hubelino vörur eru framleiddar í Þýskalandi samkvæmt ströngum gæðastöðlum. Þær eru CE-merktar, uppfylla EN 71 öryggisstaðalinn fyrir leikföng og hafa verið öryggisprófaðar af TÜV Germany.
ALDUR: 4 ára +
Dropp: verð frá 790 kr
Pósturinn : verð frá 1090 kr