Áttu nú þegar nóg af kubbum heima? Þá geturðu sameinað þá við 100% samhæfða brautarhluta frá Hubelino og byggt stórkostlegar kúlubrautir.
Viðbótarsettið er með 128 hlutum inniheldur alla helstu brautarhluta Hubelino og gerir þér kleift að endurskapa allar leiðbeiningar sem fylgja Hubelino byggingarsettunum – að því gefnu að nægilegt magn af kubbum sé þegar til staðar á heimilinu.
Settið er fullkomið fyrir þá sem vilja stækka kúlubrautakerfið sitt án þess að kaupa fleiri kubba. Með fjölbreyttum brautarhlutum er hægt að blanda saman við núverandi leikföng og skapa kraftmiklar, fjölbreyttar og spennandi kúlubrautir aftur og aftur.
Allir 128 hlutirnir í kassanum eru samhæfðir algengum kubbakerfum frá öðrum framleiðendum, t.d Duplo og má því auðveldlega sameina við núverandi kubba. Eins og allar vörur frá Hubelino eru kubbarnir framleiddir í Þýskalandi samkvæmt ströngustu gæðakröfum.
Öryggi og gæði í fyrirrúmi
Hubelino vörur eru framleiddar í Þýskalandi samkvæmt ströngum gæðastöðlum. Þær eru CE-merktar, uppfylla EN 71 öryggisstaðalinn fyrir leikföng og hafa verið öryggisprófaðar af TÜV Germany.
ALDUR: 4 ára +
Dropp: verð frá 790 kr
Pósturinn : verð frá 1090 kr