Öruggur og vandaður Montessori hnífur sem er sérstaklega hannaður fyrir börn. Hnífurinn er úr við og inniheldur engin eiturefni. Börnin geta þá aðstoðað í eldhúsinu og skorið niður ýmis matvæli án þess að eiga hættu á að skera sig. Börnin æfa í leiðinni fínhreyfingar og þjálfa samhæfingu handa og augna.
Hentar best fyrir 3 ára + en hægt að kynna yngri börnum á aldrinum 1-3 ára fyrir hnífnum undir eftirliti.
Eftir notkun þá er best að þvo hnífinn með volgu vatni og mildri sápu og þurrka hnífinn strax á eftir. Þegar viðurinn í hnífnum verður þurr með tímanum, þá má gjarnan bera á hann olíu.
Má ekki setja í örbylgjuofn eða uppþvottavél. Ekki mælt með að skera kjöt og fisk með þessum hníf en tilvalið að skera ávexti, grænmeti, brauð, kökur, deig, leir ofl ofl.
Dropp: verð frá 790 kr
Pósturinn : verð frá 1090 kr