Sendu okkur póst á kkverslun@kkverslun.is fyrir frekari upplýsingar !
Cord sófarnir eru úr einstaklega mjúku áklæði með 'ribbed' línum.
Leiksófinn sem er að slá öll vinsældarmet er að koma aftur til Íslands! Eru börnin að taka pullurnar úr sófanum heima til að búa til virki? Þá er vert að skoða þetta! Börnin geta látið ímyndunaraflið blómstra og byggt hvað sem þeim dettur í hug, virki, kastala, geimflaug, möguleikarnir eru endalausir!
Fyrir utan óendanlega leikmöguleika þá er Bunky sófinn mjög falleg mubla inní barnaherbergi og það er kósý að liggja í honum og t.d. lesa eða sitja í honum og leika með dótið sitt. Einnig er hægt að stafla honum alveg upp svo hann taki sem minnst pláss og þá er hægt að skella honum út í horn en samt hægt að nota sem sæti. Einnig hafa margir notað hann sem skemil í stofunni þegar hann er ekki í notkun.
Tilvalin á öll heimili, leikskóla, skóla, bókasöfn og fleiri staði.
Bunky sófinn er frá Þýskalandi og er ótrúlega vandaður og í hæsta gæðaflokki. Sófinn er í 6 hlutum og hver hlutur er úr stífum og góðum CE vottuðum svampi. Utan um svampinn er vatnshelt verndandi lag. Svo er ysta áklæðið sem er svakalega mjúkt og kósý og auðvelt að strjúka af. Ef það sullast eitthvað á sófann þá er gott að taka áklæðið af og strjúka bleytuna af vatnshelda laginu og setja svo áklæðið aftur á. Hægt er að þvo bæði mícrovelúr áklæðið og vatnshelda lagið á 30 gráðum í þvottavél. Ekki má setja það í þurrkara.
Svampurinn er Oeko-Tex vottaður.
Efnið í áklæðinu er Oeko-Tex vottað, endingargóð, einstaklega þæginleg og umfram allt örugg. Til að tryggja að Bunky-áklæðin líti ekki aðeins fallega út að utan eru þau einnig vandlega faldsaumuð að innan. Faldurinn er styrktur með sikksakk-saumi sem kemur í veg fyrir að efnið trosni. Þetta lítur ekki aðeins vel út heldur tryggir einnig að áklæðin haldi lögun sinni, endingu og gæðum til langs tíma.
Til að bjóða upp á sem allra hæstu gæði eru notaðir rennilásar frá hinu rótgróna þýska fyrirtæki „Heiligenstädter Reißverschlüsse“, sem hefur framleitt einhverja af bestu rennilásum í yfir 80 ár.
Stærð:
Heildarstærð á sófanum þegar hann er samsettur eins og sófi: 168 x 84 x 58 cm (L x B x H)
Stærsta base pullan: 168 x 84 x 14 cm
Þynnri base pullan: 168 x 84 x 7 cm
Þríhyrningapúðarnir: 55 x 37 x 37 cm hvor
Armrest púðar 84 x 20 x 11 cm hvor
Sófinn kemur pressaður saman í kassa sem er um 89 x 38 x 38 cm. Það tekur nokkra klukkutíma fyrir svampinn að þenjast alveg út eftir að hann er tekinn úr kassanum. Tekur ennþá styttri tíma ef börnin fá að leika sér strax í sófanum.