Við erum að flytja og opnum aftur búð eftir nokkrar vikurÁttu ósótta pöntun hjá okkur? Heyrðu í okkur á kkverslun@kkverslun.is eða á samfélagsmiðlum !!
Leikbakkinn frá Jellystone er fullkominn fyrir skynjunarleikinn! Þarna færðu tvo fyrir einn því í raun er einnig hægt að nota lokið á bakkanum sem sér bakka. Annar bakkinn er úr bambustrefjum og melamíni og er alveg opinn inní en hinn bakkinn (lokið) er úr sílikoni og er skiptur í fjögur hólf. Hægt er að setja hvað sem er í bakkana td. vatn, leir, hrísgrjón, sand, leikföng eða hvað sem fólki dettur í hug.
Bakkann má setja í uppþvottavél svo að frágangurinn verður þægilegri, svo bara er lokinu smellt á og bakkinn geymdur þangað til á að leika með hann næst!