Hágæða, extra fíngerða og umhverfisvæna glimmerið frá Natural earth paint er vegan og laust við ál og er niðurbrjótanlegt en hefur samt svo fallegan glampa og gljáa. Glimmerið kemur í 4 litum, gull, silfur, brons og túrkís. GLimmerið er einnig vottað öruggt fyrir húð svo hægt er að nota það á andlit og líkama og líka á blað eða á listaverkið. Þannig að hægt er að fá glimmer og gleði í lífið án þess að það skaði móður náttúru. Tilvalið að nota með andlitsmálningunni frá Natural earth paint!
Glimmerið er úr náttúrulegum efnum og laust við öll óæskileg efni. 100% öruggt á barnshúð.
Glimmerið kemur í endurunnum áldósum sem hægt er að endurvinna áfram.
Aðferð: Notið fingur eða bursta til að setja glimmerið yfir blauta andlitsmálningu eða setjið aloe vera gel á andlit/líkama og setjið svo glimmerið á svo það haldist á húðinni með aloe vera gelinu, einnig sniðugt að setja aðra umferð af aloe vera geli ofan á glimmerið svo það haldist enn lengur. Einnig er hægt að blanda saman í krukku aloe vera geli og glimmeri og bera þannig blöndu á húð. Blandan mun endast í krukku í 6 mánuði.
Svo er hægt að nota þetta með vatnsmálningu eða með leir eða hvers kyns föndri.
Dropp: verð frá 790 kr
Pósturinn : verð frá 1090 kr