Lipur og þægilegur skeljagalli frá sænska merkinu Villervalla. Gallinn er með límdum saumum og endurskini. Gallinn er vatnsheldur (8000 mm), andar vel (5000G/m2/24H). Hægt er að fjarlægja hettuna og stilla stroff. Það eru þumlagöt á ermum og teygjur undir skálmum.
Það er pólýúretan húð innan á efninu í gallanum sem tryggir að vatn komist ekki í gegn. Efnið er laust við perflúoruð efni/flúrkolefni, flíkurnar eru sendar í próf áður en þær fara í sölu til að útiloka að efnið innihaldi ekki skaðleg efni eins og PFOS og PFOA.