Litríkar og fallegar úlpur frá sænska merkinu Villervalla.
Úlpan er vatnsheld (8000 mm), fóðruð, lipur og þægileg með teipuðum saumum og andar vel. Sniðið er mjög klæðilegt, úlpan er örlítið síðari að aftan sem kemur mjög flott út. Hægt að stilla vídd á ermaopi og á ermum er teygja til að hindra að snjór komist inn í ermar. Hettuna er einnig hægt að taka af og stilla og inní hettunni er svakalega mjúkt og kósý loðfóður. Endurskin á ermum, hettu og baki. Efnið er sterkt og eiturefnalaust og þolir vel íslenskar veðuraðstæður.