




Þræðingarsett - 12 viðarkubbar sjóræningjar
3.591 ISK 3.990 ISK
Í þessu skemmtilega setti eru 12 litríkir kubbar úr við í skemmtilegu sjóræningjaþema og ein viðar "nál" með bandi til að þræða kubbana á. Settið kemur í fallegum og praktískum kassa sem hægt er að geyma kubbana í. Settin eru einnig til með safari dýraþema, bílaþema og sveitaþema. Hægt er að kaupa settin í sitthvoru lagi eða nota þau í bland, börnin geta látið ímyndunaraflið ráða för og búið til sína eigin sögu. Einnig er hægt að nota kubbana í hvers kyns leiki og passa þeir með ýmsum öðrum leikföngum. Kubbarnir eru málaðir á báðum hliðum með eiturefnalausri málningu.
Hentar frá 24 mánaða +
Þetta leikfang er frábært til að æfa fínhreyfingar of æfa samhæfingu milli handa og augna. Meðalhæð á kubbunum er: 6 cm.