Viðar brunabíll frá Tenderleaf toys! Bíllinn er með brunaslöngu sem hægt er að toga út og slökkva elda. Einnig er viðar armur til að lyfta upp í hæstu hæðir ef þarf að slökkva elda á efstu hæð í blokk eða bjarga kettling úr tré. Í þessu setti eru allskonar aukahlutir sem er hægt að geyma í bílnum. Ef opnuð er hlífin að aftan finnst auka slanga, brunahani, slökkvitæki, keila og 4 vegtálmar. Einnig fylgja 4 slökkviliðsmenn og konur.
Hentar best fyrir 3 ára +
Leikföngin frá Tender Leaf eru CE vottuð, eiturefnalaus og örugg fyrir börnin. Mikið er lagt upp úr umhverfisvænni framleiðslu og leikföngin eru úr gúmmívið. Fyrir hvert tré sem notað er í leikföngin, planta þau nýju í staðin. Tender leaf toys hefur fengið "seal of approval" frá ICTI ethical toy program fyrir þeirra sjálfbæra og siðferðislega framleiðsluferli.
Dropp: verð frá 590 kr
Sending.is: verð frá 690 kr
Pósturinn : verð frá 1090 kr