Hvað er hægt að stafla mörgum dýrum áður en allt hrynur? 10 stykki viðar sveitadýr frá Tender leaf toys ásamt hjólböru og heybakka. Sniðugt leikfang til að æfa samhæfingu og fínhreyfingar með því að stafla þeim en svo er hægt að nota dýrin í hverskyns leiki. Taupoki til að geyma dýrin í fylgir með.
Hentar fyrir 3 ára +
Leikföngin frá Tender Leaf eru CE vottuð, eiturefnalaus og örugg fyrir börnin. Mikið er lagt upp úr umhverfisvænni framleiðslu og leikföngin eru úr gúmmívið. Fyrir hvert tré sem notað er í leikföngin, planta þau nýju í staðin. Tender leaf toys hefur fengið "seal of approval" frá ICTI ethical toy program fyrir þeirra sjálfbæra og siðferðislega framleiðsluferli.
Dropp: verð frá 590 kr
Sending.is: verð frá 690 kr
Pósturinn : verð frá 1090 kr