Gullfalleg pollaföt sem eru hönnuð í samstarfi tveggja þekktra sænskra merkja - Geggamoja X Mrs Mighetto! Útkoman er tímalaus fatnaður í hæsta gæðaflokki með ævintýralegum mynstrum sem eru gerð útfrá fallegu teikningum Mrs Mighetto.
Praktískur og vandaður pollagalli með endurskini á bæði jakka og buxum. Buxurnar eru háar í mittið og bæði jakki og buxur eru fóðraðar með notalegu flísfóðri að innan.
Pollagallinn er með umhverfisvænustu húðunina á markaðnum en hann er húðaður með Bionic finish eco.
8000mm vatnsheldni.
Hægt að taka hettu af.
Efni: 100% Pólýester/100% endurunnið pólýester í fóðrun.
Má þvo á 40 gráðum, ekki setja í þurrkara.
Allur útifatnaður frá Geggamoja er algjörlega laus við skaðleg efni eins og fluorcarbons, formaldehyde og paraffín.
Fötin frá Geggamoja eru stór í númerum.
Dropp: verð frá 590 kr
Sending.is: verð frá 690 kr
Pósturinn : verð frá 1090 kr