20%
Cuboro - Standard 50
Cuboro - Standard 50
Cuboro - Standard 50
Cuboro - Standard 50

Cuboro - Standard 50

Regular price 39.990 kr Sale price31.992 kr Þú sparar 7.998 kr
/
verð með vsk
  • Til á lager
  • Inventory on the way

Vönduðu og skemmtilegu kúlubrautirnar frá Cuboro eru komnar til Íslands. Þetta einstaka og vandaða leikfang fær börn svo sannarlega til að nota hugmyndaflugið og styður einstaklega vel við opinn leik barna því hægt er að byggja óteljandi mismunandi kúlubrautir. 

Cuboro er svissneskt fyrirtæki sem hefur framleitt þessar einstöku kúlubrautir síðan árið 1986. 

Þetta leikfang er framleitt á sjálfbæran hátt úr hágæða svissneskum við og er gert til að endast kynslóðanna á milli. Cuboro stendur fyrir tímalausa hönnun og lífstíðar lærdóm. Cuboro kúlubrautin er áskorun fyrir börn og fullorðna og ásamt því að vekja upp gleði og forvitni þá krefst þetta leikfang þess að notuð sé rökhugsun. Leikfangið þjálfar fínhreyfingar og virkjar rýmisgreind ásamt því að ímyndunaraflið fer á flug. 

Í þessu grunnsetti í stærstu stærð eru 50 kubbar og 5 kúlur og hentar best fyrir 5 ára + Öll settin frá Cuboro ganga saman og alltaf hægt að bæta í safnið til að geta gert stærri og flóknari kúlubrautir.

 

 

Dropp: verð frá 590 kr

Sending.is: verð frá 690 kr

Pósturinn : verð frá 1090 kr


Nýlega skoðað