20%
Cuboro - Kick viðbótarsett
Cuboro - Kick viðbótarsett
Cuboro - Kick viðbótarsett

Cuboro - Kick viðbótarsett

Regular price 22.990 kr Sale price18.392 kr Þú sparar 4.598 kr
/
verð með vsk
  • Er að klárast - 1 stk eftir á lager!
  • Inventory on the way

Vönduðu og skemmtilegu kúlubrautirnar frá Cuboro eru komnar til Íslands. Þetta einstaka og vandaða leikfang fær börn svo sannarlega til að nota hugmyndaflugið og styður einstaklega vel við opinn leik barna því hægt er að byggja óteljandi mismunandi kúlubrautir. 

Cuboro er svissneskt fyrirtæki sem hefur framleitt þessar einstöku kúlubrautir síðan árið 1986. 

Þetta leikfang er framleitt á sjálfbæran hátt úr hágæða svissneskum við og er gert til að endast kynslóðanna á milli. Cuboro stendur fyrir tímalausa hönnun og lífstíðar lærdóm. Cuboro kúlubrautin er áskorun fyrir börn og fullorðna og ásamt því að vekja upp gleði og forvitni þá krefst þetta leikfang þess að notuð sé rökhugsun. Leikfangið þjálfar fínhreyfingar og virkjar rýmisgreind ásamt því að ímyndunaraflið fer á flug. 

 

Í þessu setti eru 8 kubbar og 5 kúlur, skemmtilegt viðbótarsett við grunnsettin frá Cuboro. Kick hamarinn skellir kúlunni aftur upp svo hún byrjar á brautinni upp á nýtt. 

 

 

Dropp: verð frá 590 kr

Sending.is: verð frá 690 kr

Pósturinn : verð frá 1090 kr


Nýlega skoðað