Nú er komið á markaðinn nýjung þar sem tvö af vinsælustu leikföngum heims renna saman í eitt, Lego og Segulkubbar. Nú er búið að hanna segulkubba sem Lego®/Duplo® festist á, enda snilld að nota Lego®/Duplo® með í segulkubbaleiknum.
Í þessu setti eru 24 Magbrix ferningar frá Ástralska merkinu Magblox. Kubbarnir eru gerðir úr 100% öruggu ABS plasti, food grade, eiturefnalaust og laust við BPA og phthalate. Magbrix passar með Playmags segulkubbunum ásamt öðrum helstu segulkubbamerkjum. Segullinn í Magblox kubbunum er mjög sterkur og því auðvelt að byggja úr kubbunum.
Kubbarnir koma í öllum regnbogans litum og sumir eru gagnsæir og aðrir ekki. Hægt að festa Lego®/Duplo® á báðar hliðar á kubbunum.
Dropp: verð frá 590 kr
Sending.is: verð frá 690 kr
Pósturinn : verð frá 1090 kr