Þetta vandaða Grapat leikfang inniheldur 6 veglega viðar diska í regnboga litunum. Þessir diskar bjóða börnum uppá að skapa sína eigin leiki á þeim. Þú getur talið og sorterað kúlur eða steina, hluti sem þú finnur út í náttúrunni t.d. Þessir diskar eiga vel heima með hinum ýmsu viðarkubbum þar sem börn nota þá oft sem þak á húsum osfrv. Einnig eru þetta fínir diskar í leik í litlu eldhúsi ofl ofl. Þessir diskar geta verið hluti af allskonar mismunandi leikjum og það eru engin takmörk fyrir því hvað börn geta gert með þeim. Afhendist í fallegum umbúðum svo þetta er tilvalin gjöf. Hentar fyrir börn 12 mánaða +
Grapat leikföng eru hönnuð til að kveikja á náttúrulegri löngun barna til að leika sér. Þetta eru einföld leikföng úr opnum efnivið til að börnin upplifi frelsi í leik. Grapat leikföng eru afar vönduð, handgerð úr við frá sjálfbærum skógum og handmáluð með eiturefnalausri vatnsmálningu.
Dropp: verð frá 590 kr
Sending.is: verð frá 690 kr
Pósturinn : verð frá 1090 kr