Einstakt púsluspil frá Madd Capp! Púslið er ótrúlega veglegt og stórt og í þessum kassa eru 100 stór stykki og henta vel fyrir litlar hendur. Þegar púslið er full klárað er myndin 84 X 61 cm (poster size)! Púslið er einstakt í laginu, ekki klassískt kassalaga heldur í laginu eins og skjaldbaka og þar af leiðandi verða púslin á jaðrinum skemmtileg í laginu. Í hverju púsli frá Madd Capp fylgir fræðandi bæklingur um dýrið sem um ræðir (á ensku), í bæklingnum er listi yfir áhugaverðar staðreyndir um dýrið. Sem dæmi: Vissir þú að nýfæddar sæskjaldbökur eru í allt að 7 daga að grafa sig uppúr hreiðrinu í sandinum. Þær bíða til sólarlags og stefna þá í átt að sjónum til að stinga sér til sunds í fyrsta sinn.
Í bæklingnum er einnig stór mynd af dýrinu og hægt er að nota það sem plakat og hengja á vegg.
Dropp: verð frá 590 kr
Sending.is: verð frá 690 kr
Pósturinn : verð frá 1090 kr