Einstakt púsluspil frá Madd Capp! Púslið er ótrúlega veglegt og stórt og í þessum kassa eru 100 stór stykki og henta vel fyrir litlar hendur. Púslið er einstakt í laginu, ekki klassískt kassalaga heldur í laginu eins og refahöfuð og þá verða púslin á jaðrinum skemmtileg í laginu.
Í hverju púsli frá Madd Capp fylgir fræðandi bæklingur um dýrið sem um ræðir (á ensku), í bæklingnum er listi yfir áhugaverðar staðreyndir um dýrið. Sem dæmi: Refir hafa einstaklega góða nætursjón, líkt og kettir hafa og þeir veiða sér til matar á nóttunni.
Í bæklingnum er einnig stór mynd af dýrinu og hægt er að nota það sem plakat og hengja á vegg.
Dropp: verð frá 590 kr
Sending.is: verð frá 690 kr
Pósturinn : verð frá 1090 kr