Fitwood - KAURA púði í klifurboga
Fitwood - KAURA púði í klifurboga
Fitwood - KAURA púði í klifurboga
Fitwood - KAURA púði í klifurboga

Fitwood - KAURA púði í klifurboga

Regular price21.990 kr
/
verð með vsk
  • Til á lager
  • Inventory on the way

KAURA púðinn frá finnska merkinu Fitwood var hannaður til að passa fullkomlega með LUOTO klifurboganum, þegar honum er snúið á hvolf þá er hægt að hafa það kósý í þessum mjúka og þægilega púða og hægt að rugga sér fram og til baka.

Púðinn er ótrúlega vandaður og veglegur og er skiptur í 6 hólf og hvert hólf er fyllt með mjúkri 100% endurunninni EcoSuperSoft fyllingu, púðinn var hannaður til að hámarka þægindi og það er mjög notalegt fyrir börn að liggja á honum. Það eru bönd á púðanum sem fara utan um rimlana á klifurboganum svo að púðinn haldist á sínum stað.

Ysta lagið á púðanum er úr 97% endurunnu efni (84% endurunnin bómull, 13% endurunnið pólýester og 3% bómull). Efnið er með OEKO-tex standard 100 vottun. 

Púðinn er hannaður og framleiddur í Finnlandi. Hægt er að  þvo púðann á 40 gráðum á delicate prógrammi.

KAURA púðinn er með 2 ára ábyrgð.

Litur: Sand

ATH: klifurboginn er seldur sér.

Dropp: verð frá 790 kr

Pósturinn : verð frá 1090 kr

Þér gæti einnig líkað við


Nýlega skoðað